//
Gönguferðir í París: um 3 klst.

PANTANIR Í FERÐIR OG VERÐ

Verð fyrir gönguferðirnar í París:
40 evrur á mann.
16-20 ára: 10 evrur, ókeypis fyrir börn yngri en 16 ára.
Sértilboð fyrir hópa.

Tölvupóstur: parisardaman@gmail.com

LEIÐARLÝSINGAR

1. Mýrin – Le Marais (4. hverfið)

Mæting á Bastillutorgið, við tröppurnar á nýja óperuhúsinu sem trónir yfir torginu, undir risaskjá.
Metróstöðin heitir BASTILLE, línur 1, 5 og 8.

Gengið yfir í elsta og best varðveitta hverfi Parísar, Mýrina, þar sem úir og grúir af smáhöllum frá 17.öld, lágreistum húsum og þröngum götum. Farið yfir byltingasöguna og glæsilífið í höllunum á 17. og 18. öld. Við ræðum m.a. nokkrar valdamiklar konur sem fáir vita af.

Helstu viðkomustaðir : Place des Vosges (bleika höllin), Rue des Rosiers (gyðingagatan), Carnavalet, sögusafn Parísarborgar, Rue Vieille du Temple.
Ferðinni lýkur við Pompidou-safnið, eina mest ögrandi byggingu Parísar.


2. Montmartre listamannahæðin og hvíta kirkjan Sacré Cœur (18. hverfi)

Mæting við eina útganginn á metróstöðinni BLANCHE, lína 2. Place Blanche, ef komið er í leigubíl.

Gengið upp á hæðina, eftir gamla fjallveginum, rue Lepic, frá Rauðu Myllunni.
Farið um litlu göturnar umhverfis á slóðir Amelíu úr samnefndri kvikmynd.

Þarna eimir enn eftir af sveitaþorpsstemningunni, myllur, gamlir bóndabæir og auðvitað kabarettar og vinnustofur listamanna. Ræðum impressjónistana, iðnbyltinguna og bóhemalífið nú og þá.
Ferð lýkur á toppnum, á listamannatorginu, Place du Tertre.


3. Latínuhverfið (5. hverfi).

Mæting á torginu fyrir framan Notre Dame, nærri styttunni af Karlamagnúsi (hægra megin þegar horft er á kirkjuna). Metró SAINT MICHEL eða CITÉ (4).

Gengið í gegnum þröngar götur, heilsað upp á elsta tré Parísar, upp á hæðina, mont Sainte Géneviève, framhjá Sorbonne, Háskólabókasafninu, Panthéon og gegnum Place de la Contrescarpe.
Ferð lýkur neðst á Rue Mouffetard, sem er ein fallegasta gata Parísar. Þar er matarmarkaður á morgnana til ca 13 og aftur í lok eftirmiðdags fram á kvöld.

LENGD FERÐ ca 30 – 45 mín í viðbót (+  10 evrur á mann):
Gengið yfir í arabísku moskuna og myntute (innifalið) drukkið í fallegu testofu hennar. Endað í plöntugarðinum.


4. Edith Piaf, Ménilmontant og Belleville (20. hverfið).

Mæting við metróstöðina BELLEVILLE, á horni Boulevard de Belleville og Rue de Belleville, við kaffihús sem heitir LA VIELLEUSE.

Byrjað á að ganga upp götuna og að tröppunum þar sem Edith Piaf fæddist og endað við gröf hennar í Père Lachaise kirkjugarðinum.
„Skuggahverfi“ Parísar skoðað með viðkomu í Belleville-garðinum þar sem sést yfir borgina.
Þröngar götur, innflytjendur frá öllum heimsins hornum og ungt listafólk með sölugallerí.
400 hektara kirkjugarðurinn þræddur og heilsað upp á nokkur ódauðleg stórmenni sem þar hvíla.

Ferðinni lýkur við metróstöðina Père Lachaise (l. 2 og 3).

Pantanir: parisardaman@gmail.com

Lokað er á athugasemdir.

%d bloggurum líkar þetta: